Matóskvísur

þriðjudagur, október 05, 2004

skemmtilegt blogg!!!

sælar stúlkur og takk fyrir síðast!! Dúndur gaman á laugardaginn - ég reyndar mætti til JGG varla standandi í lappirnar eftir að hafa drukkið síðan 5 í afmælinu hjá pabba. Ef það er ekki tilefni til að fagna þegar karlinn verður 50 ára þá er aldrei tilefni :) Harpa, Kata og Tóta, hvenær fórum við eiginlega í bæinn??? ég var mætt á staðinn um eitt og við vorum svo í einhvern tíma bara fjórar eftir heima hjá Hörpu áður en við fórum í bæinn - svaka gaman :)
Ég datt inn á sprenghlægilegt blogg áðan FYNDIÐ.... þið verðið að kíkja á þetta..... ótrúleg sögumanneskja sú sem skrifar á þetta blogg, eintóm skemmtun ;)

2 Comments:

  • Halló og takk fyrir síðast sömuleiðis :) Þetta var svaka stuð og alveg týpískar við að enda bara 4 eftir og fara manna langsíðastar í bæinn!!! En ég held að við höfum ekkert farið fyrr en bara um tvö eða þrjú...var samt ekki alveg með klukkuna á hreinu ;)

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 4:38 e.h.  

  • Já, takk fyrir sömuleiðis :o) Ég held nú að klukkan hafi verið orðin rúmlega 3 þegar við fórum í bæinn!!! Alla vega var hún held ég orðin hálf 3 þegar við byrjuðum að hringja í leigubíl, og það tók nú sinn tíma...

    By Blogger Harpa, at 10:22 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home