Matóskvísur

þriðjudagur, desember 27, 2005

Hittingur...hittingur...

Hæ skvísur!

Hvað segiði um að reyna að hittast eitthvað meðan ég er hérna á landinu?? Langaði að athuga hvernig fimmtudagskvöld eða föstudagskvöld hentar ykkur? Gætum hist hérna heima hjá mér í Hæðarbyggðinni og kjaftað og haft það kósý :) En svo getur líka vel verið að allir séu uppteknir og séu með önnur plön.....
Endilega látið mig vita ef þetta er eitthvað sem áhugi er fyrir...

knús,
Vallý

5 Comments:

  • Ég er til í hitting :) Held að ég sé nú bara laus bæði kvöldin ...

    By Blogger isamaja, at 4:37 e.h.  

  • Hæ hæ!
    Já ég er líka upptekin á föstudagskvöldið, erum í jólaboði, en er held ég laus á fimmtudaginn.

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 10:48 f.h.  

  • Ok mér sýnist að flestar komist á fimmtudagskvöldið :) þannig að þið eruð velkomnar hingað í Hæðarbyggðina kl 21:00 Ég ætla að reyna að hafa osta og salsa og eitthvað svoleiðis en ef ykkur langar að koma með eitthvað þá má það alveg líka ;)

    By Blogger Valgerdur, at 2:39 e.h.  

  • Alltaf tímanlega að svara ;o) Er í fríi og því ekkert að kíkja of mikið í tölvuna!
    Sýnist vera búið að ákveða fimmtudag þannig að ég reyni að kíkja þá! Er í matarboði á föstudaginn og svo er JGG reyndar að fara í einhvern vinnukokteil/partý á fimmtudaginn, en ég fæ kannski einhvern til að koma og sitja hjá Maríu þegar hún er sofnuð til að kíkja á ykkur.

    By Blogger Harpa, at 3:50 e.h.  

  • Ertu sem sagt í badminton á fimmtudögum Sigga?? ;) En mér líst vel á þetta, ég mæti.....svo lengi sem Vallý verður heima, hahaha :D Fer alveg að hætta að gera grín af þessu!

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 5:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home