Matóskvísur

þriðjudagur, október 05, 2004

JÓLAHLAÐBORÐ!!

jæja stelpur, við þurfum örugglega að fara að ákveða hvert við förum á hlaðborð og ég stakk upp á því hér um daginn að við mundum fara í hádeginu mánudaginn 20. desember (þegar Vallý og Þóra eru komnar heim).... hvernig líst ykkur á það??
Svo er það spurning um hvert við eigum að fara, hér eru hugmyndir: Lækjarbrekka = 2900 kr hlaðborðið í hádeginu, Holtið, Skólabrú, Argentína, Perlan og svo eru eflaust einhverjir fleiri staðir... eigum við ekki bara að kjósa hérna á þessarri blessuðu heimasíðu hvert við viljum fara í hádegishlaðborð og hvaða dagsetning hentar best :)

7 Comments:

  • Mér er svona nokkuð sama hvert við förum, var samt ekkert alltof hrifin af argentínu. Líst vel á að prófa Lækjarbrekku eða Holtið :o) Veit ekki betur en 20. des henti bara ágætlega :p

    By Blogger Cilla, at 4:14 e.h.  

  • Sko, mér finnst Argentína alltaf langbest en ég er líka alveg til í að prófa eitthvað annað! Mér er í raun alveg sama hvert við förum...en langar kannski síst á Skólabrú! Ég plata þá bara karlinn með mér á Argentínu í staðinn ;) Ég ætti alveg að komast 20. des, ef við förum í hádeginu....

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 4:29 e.h.  

  • Hæ! Ég er til í held ég bara hvaða stað sem er.. finnst samt Argentína alltaf gott ;) En veit ekki hvort að ég komist 20. des... held ég verði að vinna... en kannski ég geti fengið frí...

    By Blogger Valgerdur, at 5:13 e.h.  

  • Úbbosí!!! Var ekki alveg að fatta að ég væri í skóla og þyrfti að taka jólapróf....sést hvað ég er dugleg að læra :S

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 11:59 e.h.  

  • En hvernig er með sunnudaginn 19. des? Eruð þið Þóra og Vallý ekki komnar heim þá?!?!? Bara að tékka :o)
    Annars er mér nokkuð sama hvert við förum, nema að ég fór á Skólabrú í fyrra og mér fannst það ekkert spes, rosalega mikið af einhverjum "þjóðlegum" réttum sem voru ekki alveg að falla í kramið hjá gikknum!

    By Blogger Harpa, at 10:25 f.h.  

  • ef að e-r er í prófi 20. og 21. des þá stórefa ég að sá hinn sami vilji fara á hlaðborð deginum áður.... eigum við ekki bara að fara þegar allir eru búnir í prófum, getum þá allar farið með góðri samvisku :) Taka langan hádegismat einn daginn ;)

    By Blogger isamaja, at 11:47 f.h.  

  • Íris er að fara að djamma um helgina - tók ekki nógu vel á því núna síðast ha ha ha.......... nei, það er víst lokapartý hjá FAME genginu snökt snökt

    By Blogger isamaja, at 3:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home