Matóskvísur

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Ef einhver vill kíkja í partý...

...þá er svaka Skífu-útgáfu-veisla á laugardagskvöldið!
Jón Gunnar bað mig að láta ykkur vita að ef ykkur langar að kíkja á djammið þá verður þetta svaka flott veisla, vín og matur í boði, fullt af hljómsveitum að spila (allar íslensku hljómsveitirnar að kynna nýju diskana sína) og eitthvað fleira skemmtilegt. Byrjar kl. 20:00 á laugardagskvöldið og er í Skeifunni 17, bakatil (búið að partý-innrétta lagerhúsnæðið).
Ef ykkur langar að kíkja látið mig þá bara vita og JGG verður með miða fyrir ykkur á staðnum.

2 Comments:

  • Já, þetta gengur ekki lengur hvað við hittumst lítið!
    En ég býst ekki við því að fara í partýið, þannig að þú verður að plata einhverja aðra með þér þangað, en vonandi að fleiri fari að commenta á föndrið, þannig að það sé hægt að fara að versla fyrir það!!! :o)

    By Blogger Harpa, at 3:15 e.h.  

  • hummm, ég vona að ég sé ekki of sein... en heldurðu að ég geti fengið tvo miða hjá ykkur, væri alveg til í að fara og mundi þá vilja draga eina vinkonu mína með mér þar sem fáar ætla að fara - þú ætlar ekki einu sinni Harpa mín, sniff sniff :'( ..... ef þú sérð þetta ekki þá bjalla ég í þig á morgun, laugardag ;)

    By Blogger isamaja, at 12:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home