Matóskvísur

föstudagur, maí 05, 2006

PARTÝ - PARTÝ!!

Hæ skvísur!

Nú er minn heittelskaði eiginmaður og partýhaldari að skipuleggja svaka partý fyrir Vífilfell því þeir eru að kynna nýjan orkudrykk sem heitir Burn.
Alla vega, þetta á að vera svaka flott partý laugardaginn 27. maí næstkomandi og vill hann náttúrulega að húsið verði STÚTFULLT af fólki. Þetta verður í IÐU húsinu, erlendir plötusnúðar að koma að spila og ALLT í boði eins lengi og partýið endist!

Ég var að spá, ef það væri stemmning fyrir því að kíkja, hvort við gætum ekki hópast eitthvað saman og kannski kíkt út að borða áður og rölt svo í partýið! Hvernig líst ykkur á það?!?

6 Comments:

  • Líst rosalega vel á þetta :) Bíð spennt :)

    By Blogger Cilla, at 1:01 e.h.  

  • Best að svara þessu hérna líka ;) Mér líst agalega vel á þetta!! Ég og minn heittelskaði eiginmaður erum að vísu í brúðkaupi um daginn en það er "bara" svona kaffiveisla þannig að ég verð örugglega búin akkúrat á réttum tíma ;) Væri alveg til í að hitta ykkur einhvers staðar, borða og komast svo kannski loksins á þetta djamm sem ég er búin að ætla mér í nokkra mánuði!! Ekki verra heldur ef það er frítt, hahaha ;)

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 4:54 e.h.  

  • Líst vel á ykkur! :o)
    Þá finnum við svo einhvern góðan stað þegar nær dregur, eitthvað sem er í göngufæri frá partýinu! Caruso, Galíleó, Tapas-barinn - við finnum eitthvað sniðugt :o)

    By Blogger Harpa, at 2:29 e.h.  

  • Líst vel á - var reyndar að pæla í innflutningspartýi þennan laugardag en það verður þá bara helgin á eftir eða eitthvað ;) Sé nefnilega ekki fram á það að ég geti haldið innflutnings-eurovision partý 20.maí :( .... þannig að ef einhver vill bjóða í svoleiðis ;)

    Íris - iðnaðarmaður með meiru he he

    By Blogger isamaja, at 11:22 e.h.  

  • Hljómar vel! Ég er orðin svo gömul að mér datt þetta ekki í hug, veit ekki einu sinni hvar B5 er ;o)

    By Blogger Harpa, at 11:38 e.h.  

  • Mér líst rosa vel á 101, var að skoða matseðilinn á báðum stöðum og gikknum mér leist ekkert á "blómkálsfroðuna" á b5 ;o)

    Á ég ekki bara að panta borð fyrir okkur á 101? Held að partýið byrji um 21, þannig að ég panta borð svona 19-20, er það ekki fínt?!? Við getum nú ekki verið þekktar fyrir að mæta fyrstar í partý!!! ;o) Set inn "update" þegar nær dregur.

    By Blogger Harpa, at 8:58 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home