Matóskvísur

fimmtudagur, desember 30, 2004

Vá!

Stelpur, við erum ekki að standa okkur - ekki búið að vera mató HEILLENGI!! Árið 2004 var ekki okkar ár, ég legg til að við verðum duglegri að hittast og svona árið 2005 ;) Núna hvet ég einhvern til að taka á skarið og halda eitt stykki mató í janúar - febrúar :)

P.S hvað erum við búnar að halda marga matóklúbba í ár? humm, ég var með í janúar, Sigga um páskana, Kata var með kjólamató í sumar og svo Cilla með í október..... voru nokkuð fleiri matóklúbbar.............. STELPUR, KOMA SVO!!!

3 Comments:

  • hummm.... gleymdi því náttúrulega að við urðum flest allar 25 ára á þessu ári þannig að við erum búnar að fara í nokkur afmælisboðin saman í ár;)

    By Blogger isamaja, at 12:49 f.h.  

  • Já, við skulum stefna að fleiri mató á þessu ári! Það er mjög líklegt að Jón Gunnar fari til London í mars, þannig að ég gæti þá kannski platað mömmu til að passa Maríu þá og boðið ykkur heim...! Sjáum til þegar nær dregur ;o)

    By Blogger Harpa, at 8:54 f.h.  

  • Mér líst bara rosa vel á það! Bara ekki helgina 18.-20. feb því þá erum við Þórhildur að fara að heimsækja hana Þóru til London :o)

    By Blogger Harpa, at 3:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home