Matóskvísur

þriðjudagur, febrúar 08, 2005

Jæja...

.. þá er maður bara á leiðinni heim til Íslands :) Eruð þið ekki spenntar ;) hehe...

En ég var að spá hvort að þið séuð uppteknar á laugardagskvöldið? Ef ekki þá var ég að spá í að halda smá hitting heima hjá mér, bara svona rólegheit og næs, þar sem að foreldrarnir eru staddir erlendis og maður hefur allt húsið fyrir sig ;) Svo langar manni nú auðvitað að heyra allar sögurnar frá síðasta mató og svoleiðis.... Ég verð allavega heima og þeir sem geta og vilja koma eru velkomnir :o)

4 Comments:

  • Jú ég er sko ýkt spennt!!! ;) En ég er held ég bara alveg laus á laugardagskvöldið....er bara í skírn um daginn en hún hlýtur nú einhvern tíma að taka enda :) Þannig að ég mæti!!!

    By Blogger Þórhildur Ýr, at 6:12 e.h.  

  • Það er eitthvað Þorrablót heima - en ég er alveg til í að kíkja á ykkur eftir á - ég verð örugglega í gírnum, búin með nokkur brennivínsstaup ;)

    By Blogger isamaja, at 6:30 e.h.  

  • Við karlinn vorum búin að plana rómó "út að borða ferð" á laugardaginn, búin að fá pössun og allt saman, þannig að ég get nú helst ekki svikið hann með það... En ég renni kannski við hjá ykkur eftir matinn, sé hvað við verðum lengi ;o)

    By Blogger Harpa, at 9:01 f.h.  

  • Frábært að einhverjar geti kíkt :o) Eigum við ekki bara að segja að húsið opni svona um hálf níu níu ;)

    Hlakka ossa til að sjá ykkur skvísur..

    By Blogger Valgerdur, at 4:27 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home