Matóskvísur

föstudagur, apríl 22, 2005

Sumarið

Sælar stúlkur og gleðilegt sumarið :o)

Minns fór í Borgarleikhúsið í gær að horfa á Ísumæjuna dansa :) Þetta voru ekkert smá skemmtileg verk... ég alveg grét úr hlátri.. sérstaklega við 3. verkið "Í ræktinni" maður kannaðist við nokkra í þessum gír hehehehe. Allavega þá er þetta rosalega vel heppnuð sýning sem ég mæli með :o) Til hamingju með þetta Íris mín kiss kiss :o)

fimmtudagur, apríl 21, 2005

Gleðilegt sumar skvísur :)

Vona að þið hafið flestar eitthvað skemmtilegra að gera í dag en að lesa fyrir próf ;) Hlakka svo til að sjá ykkur á morgun!

mánudagur, apríl 18, 2005

Sumardagurinn fyrsti

Sælar stúlkur...
ég ætla að mæta galvösk í borgarleikhúsið á fimmtudaginn og horfa á Írisi í dansleikhúsinu... vill einhver koma með?

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Dansleikhúsið!

Jæja elskurnar, þá er komið að því. Við hjá Dansleikhúsinu erum að frumsýna fjögur ný dansverk í næstu viku. Þessi sýning er öll mun hressari en sýningin í fyrra og mér þætti ofsalega vænt um það ef þið sæuð ykkur fært um að mæta :) Sýningarnar eru 21. apríl, 24. apríl og 1. maí :) Þetta er alltaf að verða flottara hjá okkur ár eftir ár og er sýningin í ár alveg hryllilega skemmtileg hi hi hi ;) Mæta í Borgó!!

mánudagur, apríl 11, 2005

Mató???

Halló!! Bara svona svo ég sé ekki að misskilja neitt, er mató hjá Hildi 22. apríl? Maður verður að hafa þetta á hreinu ;)

mánudagur, apríl 04, 2005

Könnun

Er ekki best að gera bara smá könnun?
Allir að kommenta á þessa færslu hvort þeir komist til Hildar 22. apríl eða ekki. Skiptir nottla ekki öllu máli hvort fólk sé að fara að djamma heavy eða hvað... bara málið að kíkja við ;o)

Getum rætt Eurovision-partýið svo hjá Hildsu erþaggi?