Matóskvísur

þriðjudagur, nóvember 22, 2005

Nýja vinnan!

Jamm, ákvað að skella þessu bara hérna inn!
Ég er sem sagt byrjuð í nýju vinnunni og er því komin með nýtt mail: harpa@atorka.net (já ég sagði .net, ekki .is eða .com ;o) ) og nýtt gsm númer: 840-6216.

Sendiði mér nú eitthvað fallegt ;o)

Kv. Harpa

föstudagur, nóvember 11, 2005

Takk fyrir síðast :)

Rosa gaman að hitta ykkur, þó það hefði kannski verið skemmtilegra að heyra í öllum ;)

En var ekki á planinu að hittast aftur fljótlega? Ég ætla allavega að bjóða heim, Lilja var að tala um það líka þannig að ég verð bara næst á eftir henni :)

mánudagur, nóvember 07, 2005

Dinner á fimmtudaginn :o)

Ég er búin að panta borð kl. 19.30 á Thorvaldsen á fimmtudaginn

Sjáumst hressar þá :o)

föstudagur, nóvember 04, 2005

Thorvaldsen 10. nóv

Eigum við ekki að hittast um 19.30-20.00 á fimmtudaginn?

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

10. nóvember

Sælar stúlkur... hvað segið þið um að fara út að borða 10. nóvember? Getum farið á Thorvaldsen þar er einmitt 2 fyrir 1 ef maður er með World for 2 :)

Endilega kommentið á þetta :)