Matóskvísur

miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Hittingur fyrir jólin?

sælar dömur,

vildi athuga hvort að það væri ekki stemmninga að reyna að hittast eitthvað í desember. Þarf ekki að vera um helgi ;) - gætum hist og föndrað og fengið okkur jólaöl ....

hvað segiði dömur? Er einhver sem vill taka á skarið og bjóða hjem;)

mánudagur, nóvember 20, 2006

Gleðilegan baby shower!

sælar stúlkur,

vildi bara senda ykkur kveðju þar sem ég komst ekki á sunnudaginn í showerið. En vona að þetta hafi verið ánægjulegt og þá sérstaklega fyrir þig Sigga mín.

C ya
Íris

mánudagur, nóvember 13, 2006

Árlegt útgáfupartý Senu

Ef einhverjum ykkar langar að djamma næsta laugardag, 18. nóvember, þá er árlegt útgáfupartý Senu í Listasafninu kl. 21.

Black&White dress code, allt í boði á barnum og dj Margeir að spila ásamt fleirum. S.s. partý í "Burn" stíl en aðeins meira pláss ;o)

Látið mig vita ef ykkur langar að kíkja og vantar miða, eiginmaðurinn er að dreifa miðum í vikunni.

Kv. Harpa, wife of a party-planner!

þriðjudagur, nóvember 07, 2006

Afmæliskaffi

Nú er kellingin að verða 27 ára og að því tilefni verð ég með smá kaffi og kökuboð á fimmtudagskvöldið. Húsið opnar kl 20 og það væri gaman að sjá ykkur á 4. hæðinni Sólvallagötu 74.

Íris

p.s. dyrabjallan er eitthvað að klikka þannig að þið hringið bara í mig þegar þið eruð fyrir utan og ég hleypi ykkur inn :)

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Innflutningspartý föstudaginn 3.11

Innflutningspartý verður núna á föstudaginn og opnar húsið kl 20. Það verða einhverjar léttar veigar í boði í byrjun kvöldsins. Ég vonast til að sjá ykkur sem flestir :)

Endilega látið mig vita hvort þið komist :)