Matóskvísur

miðvikudagur, mars 29, 2006

Hæ skvísur!

Jæja, þá er maður bara á leiðinni heim á klakann yfir páskana :) vúhúú.... ég er allavega spennt.. veit ekki með ykkur ;) hehehe....

En ég var að spá þar sem að ég sá að það væri verið að auglýsa eftir einhverjum til að halda mató hvort að ég ætti kannski að reyna að halda eitt stykki svoleiðis meðan ég er heima :) En það eru samt ekki margir dagar sem koma til greina en ég ætla að stinga upp á dögunum MIÐVIKUDAGINN 19. apríl (sem er síðasti vetrardagur og þar af leiðandi frí daginn eftir ;)) eða þá FÖSTUDAGINN 21. apríl??

Hvað segiði... er þetta eitthvað sem þið hafið áhuga á og komist annanhvorn daginn?

sunnudagur, mars 26, 2006

RENT!

Hvað segiði, eruð þið til í að koma á RENT í vikunni?
Ég var að spá í þriðjudags- eða miðvikudagskvöld. Setjið í comment hvort hentar ykkur betur og förum bara þegar sem flestar komast ;o)

miðvikudagur, mars 22, 2006

BÍÓ Á MORGUN!

Bara ef þið hafið áhuga þá er karlinn minn með prufusýningu á myndinni "When a stranger calls" á morgun (fimmtudag). Þetta er endurgerð af gamalli spennumynd, búin að vera rosa vinsæl í USA og eiginmanninum fannst hún alla vega mjög góð.
Ég kemst ekki sjálf, en þær sem vilja mega bara mæta í Smárabíó og taka einhvern með sér ef þið viljið! Myndin byrjar kl. 20 og JGG verður kominn þarna um 19:30.

Svo stefni ég að því að bjóða ykkur á RENT í næstu viku, væri ekki gaman að fjölmenna saman á hana?!?

See ya! :o)

mánudagur, mars 13, 2006

Takk for sidst :)

Takk fyrir síðast stelpur mínar - alltaf gaman að hitta ykkur - biðst bara afsökunar á því hvað ég var hryllilega syfjuð :P

Enn og aftur til hamingju með daginn í gær Tóta mín, vona að hann hafi verið ánægjulegur :)

fimmtudagur, mars 02, 2006

Bara til að hafa þetta formlegt ;o)

Hverjar komast til mín í kósýkvöld laugardagskvöldið 11. mars?!?