Matóskvísur

miðvikudagur, maí 31, 2006

Hvernig var stemmarinn...??

Hvað segiði... hvernig var svo á laugardaginn? Var ekki mega stuð ;) Ekkert slúður eða eitthvað skemmtilegt sem þið getið sagt frá :Þ

Forvitni Daninn

þriðjudagur, maí 23, 2006

Laugardagur til lukku :o)

Ég ætla að fara að panta borð fyrir okkur á laugardagskvöldið, erum við ekki 8? Eða hvað segir ólétta konan, heldurðu að þú kíkir með okkur út að borða?!?

Ég ætla að panta kl. 19:30 á 101 - sjáumst rosa rosa hressar þá, ég kem með miða í partýið þangað.

Og líka - ef það eru einhverjir makar/vinir sem vilja koma í partýið þá bara láta mig vita, JGG er með einhverja miða heima sem þið gætuð þá nálgast :o)

Sjáumst på lördag ;o)

föstudagur, maí 05, 2006

PARTÝ - PARTÝ!!

Hæ skvísur!

Nú er minn heittelskaði eiginmaður og partýhaldari að skipuleggja svaka partý fyrir Vífilfell því þeir eru að kynna nýjan orkudrykk sem heitir Burn.
Alla vega, þetta á að vera svaka flott partý laugardaginn 27. maí næstkomandi og vill hann náttúrulega að húsið verði STÚTFULLT af fólki. Þetta verður í IÐU húsinu, erlendir plötusnúðar að koma að spila og ALLT í boði eins lengi og partýið endist!

Ég var að spá, ef það væri stemmning fyrir því að kíkja, hvort við gætum ekki hópast eitthvað saman og kannski kíkt út að borða áður og rölt svo í partýið! Hvernig líst ykkur á það?!?