Matóskvísur

fimmtudagur, desember 29, 2005

ATH!

Vildi bara minna á hitting heima hjá mér í kvöld kl 21:00 :)

Hlakka rosa til að hitta ykkur sem flestar.....

þriðjudagur, desember 27, 2005

Hittingur...hittingur...

Hæ skvísur!

Hvað segiði um að reyna að hittast eitthvað meðan ég er hérna á landinu?? Langaði að athuga hvernig fimmtudagskvöld eða föstudagskvöld hentar ykkur? Gætum hist hérna heima hjá mér í Hæðarbyggðinni og kjaftað og haft það kósý :) En svo getur líka vel verið að allir séu uppteknir og séu með önnur plön.....
Endilega látið mig vita ef þetta er eitthvað sem áhugi er fyrir...

knús,
Vallý

föstudagur, desember 23, 2005

Gleðileg jól!

Gleðileg jól elskurnar mínar!!

miðvikudagur, desember 21, 2005

Áramót!

Jæja gellur!
Var ekki fínt hjá ykkur á jólahlaðborðinu?

Á að gera eitthvað skemmtilegt á gamlárs eða nýárs?!? Bara forvitni, hugsa að það verði nú lítið gert hjá mér (næstu 15 árin eða svo...) þar sem það verður 2 ára afmæli á nýárs!

Ég þarf því bara að skemmta mér í gegnum ykkur - hehehe ;o)

miðvikudagur, desember 14, 2005

Jólahlaðborð!!

Ég, Cilla og Þóra ætlum að skella okkur í jólahlaðborð á Lækjarbrekku í hádeginu þriðjudaginn 20. desember. Ef einhver hefur áhuga á að koma með þá endilega láta mig vita sem allra fyrst :)

knús
ÍRIS

föstudagur, desember 09, 2005

Takk fyrir kvöldið Sigga :D

hahahahaha bara smá skot ;) En takk samt allar fyrir kvöldið, agalega fínt að fá ykkur bara í heimsókn til mín þegar ég komst ekki út! Spurning samt að slá saman í minnisbók handa Siggu.....?!