Matóskvísur

þriðjudagur, desember 26, 2006

Hátíðarhittingur!

Ykkur er hér með boðið heim til mín þann 29. desember svona um hálf átta... átta og vonast ég til að sjá ykkur sem flestar :D

Þið megið endilega skrifa í comments ef þið komist... annars er líka í góðu lagi að mæta bara ;)

knús,
Vallý

sunnudagur, desember 17, 2006

Hæ skvisur!!

Jæja, þá er maður að mæta á klakann yfir hátíðarnar og auðvitað langar mig rosa til að hitta ykkur allar saman :) Mig langaði að athuga hvernig stemmningin væri fyrir því að hittast heima hjá mér ( eða foreldrum mínum ;) ) þann 29. des? Ég myndi bjóða upp á einhverjar léttar veitingar og svo gætum við fengið okkur í aðra tánna ef áhugi er fyrir því ;) Vona að flestar séu lausar þetta kvöld....

jólaknús,
Vallý

mánudagur, desember 11, 2006

Tékkið á þessu...

hér

mánudagur, desember 04, 2006

JÓLAHITTINGURINN

...verður í Vallartröð 4 á fimmtudaginn svona um kl. 20:30.
Þær sem vilja föndra eitthvað mega að sjálfsögðu koma með það, annars á þetta bara að vera kósýkvöld með smákökum, jólaöli og einhverju fleiru góðu :o)

Hlakka til að sjá ykkur sem flestar!
Knús, Harpa