Matóskvísur

fimmtudagur, mars 31, 2005

Kominn tími á hitting?!?

Sælar stúlkur mínar ... hvað segist þá?

Hvernig er það er ekki kominn tími á hitting? Hvernig stóðu matómál?

Cillan í útlegð

mánudagur, mars 28, 2005

Vantar nýtt lesefni!

Halló kalló...

Ég er búin með allar Shopaholic bækurnar og vantar eitthvað nýtt til að lesa.... er einhver bók sem þið getið mælt með... má vera spennandi, fyndin, drama eða bara hvað sem er, er til í að lesa hvað sem er ;)

fimmtudagur, mars 24, 2005

Skrýtið

Allt er nú til hahahahaha :o)

laugardagur, mars 19, 2005

Bara ekkert að gerast....

Sælar stúlkur... það er bara allt dautt hérna!

Best maður setji þá bara inn nýjustu fréttir af sjálfum sér ;o)
Ég fór til London 3.-8. mars að hitta Þóru og það var æðislegt :o) Smá verslað... samt ekkert of mikið... farið út að borða... drukkinn bjór... hitti skólafélaga Þóru sem eru mjög skemmtilegir... horfði á Þóru brillera í hálfmaraþoni... labbaði endalaust mikið... fékk smá kvef... vaknaði 2var sinnum við brunabjölluna í byggingunni hennar Þóru (kl. 5 um morgun n.b.)... semsagt bara æði spæði :o)

Nú er fyrirtækið mitt búið að senda mig í útlegð á Reykjanesvirkjun... 2ja klst keyrsla á dag... ógeðslegt veður... brjálaður kokkur... endalaust af hressu fólki og bara almennt stuð hérna í útlegðinni ;o)

Ekkert að frétta af ykkur?

laugardagur, mars 12, 2005

Ammæli

Til hamingju með afmælið Tóta skvís... velkomin í gamlingjahópinn ;o)