Matóskvísur

föstudagur, júlí 28, 2006

Halló!!!!

Við Vallý og Katrín vorum að spjalla um daginn og langar svo að halda svona mini-árshátíð fyrir mató sem fyrst! Erum náttúrulega bara glataður saumaklúbbur að hafa aldrei haft árshátíð!! Ég get örugglega lánað mitt hús ;) og svo vorum við að spá í að gera eitthvað skemmtilegt, finna gamlar myndir og eitthvað þannig. Þannig að þið getið byrjað að kvíða fyrir því að sjá gömlu hárgreiðslurnar og svona :o) En þetta er auðvitað skemmtilegast ef sem flestar komast, hvernig eruð þið laugardaginn 26. ágúst?

miðvikudagur, júlí 19, 2006

fimmtudagur, júlí 13, 2006

Fyrsti karlkyns mató-meðlimurinn!!!

Innilega til hamingju með prinsinn elsku Lilja og Óli :o) Hlakka alveg svakalega til að sjá myndir af honum um leið og þið treystið ykkur til að skella nokkrum á netið!