Matóskvísur

mánudagur, ágúst 21, 2006

Myndir myndir myndir!!!

Bjó bara til síðu á fotki og er að hlaða myndunum þangað inn núna....það tekur smá tíma en ætti að verða búið fljótlega :o) Slóðin er www.fotki.com/thya - kíkið á það!

Takk fyrir síðast skvísur!!!

Þetta var alveg meiriháttar gaman, held og vona að allar hafi skemmt sér vel :o)
Ég ætla að reyna að setja inn myndir í dag þegar Sara leggur sig.....en hvert á ég að setja þær?!? Var ekki einhver mató-myndasíða til?

föstudagur, ágúst 18, 2006

Sólavallagata 74

Þá er það ljóst að dagurinn hefst heima hjá mér á morgun og verð ég með smá brunch fyrir okkur áður en við förum í óvissuna.

Þær sem hafa ekki komið til mín þá er gengið inn á framnesvegi :)

Eigum við að vera þægilega klæddar yfir daginn?????

Hlakka til að sjá ykkur á morgun!!

sunnudagur, ágúst 13, 2006

Árshátíðar-kosning :o)

Jú komiði sælar!
Datt í hug að skella bara smá kosningu hér inn.....eða að biðja ykkur að kjósa í kommentunum ;) Fyrst Þóra kemst ekki 26. ágúst og Harpa er svona hálf tæp þá er kannski spurning að sjá hvort hentar betur, næsta helgi eða þarnæsta. S.s. 19. ágúst eða 26. ágúst.
Endilega kommentið svo sé hægt að ákveða þetta :o)